nyja-logo-smallnyja-logo-smallnyja-logo-smallnyja-logo-small
  • Heim
  • Verslun
  • Vöruafgreiðsla
  • Um okkur
  • Hafa samband
✕
0

0kr.

Mín síða

Three Sixty Vodka 100 Proof (1000 ml)

16.000kr.

Vegan / Glútenlaust

Three Sixty Vodka 100 Proof er evrópskt úrvalsvodka, fjóreimað og demantasíað fyrir átöppun; vönduð þýsk gæðaframleiðsla sem er framleidd úr hágæða glútenlausu hveiti og alfarið laus við ofnæmisvalda og dýraafurðir.

Aðlaðandi og sérstyrkt hágæða vodka með 50% vínanda, sem gerir drykkinn tilvalinn í kokteila og sérlagaða drykki, en silfruð og fletaskorin flaskan er listilegur óður til fagurra síðkvölda. Sannkallað augnakonfekt fyrir betri vínskápinn.

50% Alc / 1000 ml / Glerflaska / Skrúftappi

Out of stock

Fá tilkynningu

SKU: sch0016 Categories: 360 Vodka, Vodka
Share
  • Description
  • Additional information

Three Sixty Vodka 100 Proof

Vegan / Glútenlaust

Three Sixty Vodka 100 Proof er evrópskt og sérstyrkt úrvalsvodka í hæsta gæðaflokki; vönduð þýsk gæðaframleiðsla í glæstri og sérhannaðri flösku sem ber vott um vandvirkni, metnað og gæði að ógleymdri útlithsönnun sem gerir sjálfa flöskuna að glæstum kosti í betri vínskápinn.

Glútenlaust: Hágæða hveitivinnsla

Three Sixty Vodka línan er framleidd úr hágæða, evrópsku hveiti sem er sérræktað og sérunnið eftir afar ströngum gæðastöðlum og inniheldur engar glútenagnir, þar sem sérstöku ensími er beitt á ræktunarstigi brýtur niður glúten, ásamt því sem eimunarferlið sjálft afmáir allar glútenagnir. Þess má þá einnig geta að engar dýraafurðir fara í framleiðsluna, sem gæða þennan gæða-vodka hinum eftirsóknarverða Vegan-gæðastimpli.

Fjórföld eimun

Fjórföld eimun er framkvæmd eftir ströngustu gæðastöðlum og er vínið að lokum síað með allsérstæðri demantasíun sem fjarlægir allra smæstu svifagnirnar úr sjálfu eimunarkerinu; en með slíkri síunaraðferð er eimunarmeistaranum unnt að sía frá agnir að allt að þúsundusta úr millimetra út áður en kristaltærum, vínandanum er loks tappað á flöskur.

Einkaleyfi: Háþróuð demantasíunartækni

Sérstaða framleiðanda er þá einkaleyfisvædd demtantasíunartæknin, sem gæðir framleiðsluna gæðastimpli á heimsmælikvarða. Einkaleyfið er lögmætur og staðfestur mælikvarði á sérstöðu Three Sixty Vodka línuna, sem enginn annar en framleiðandi hefur heimild til að beita við afar vandað og háþróað eimunar- og síunarferlið.

Sérstyrkt: 50% áfengismagn

Það sem gæðir Three Sixty Vodka 100 Proof sérstöðu innan Three Sixty línunnar, er vínandinn, en eins og nafnið gefur til kynna er 100 Proof með hærra áfengisinnihaldi en almennt er um vodka, eða 50% áfengismagni. Þetta gerir að verkum að 100 Proof er fullkomið vodka í vandaða kokteila og blandaða drykki.

Glæst útlitshönnun: Fletaskorin glerflaska

Sjálf flaskan, sem er krómhúðuð og ber bikasvartan miða með upphleyptum silfruðum prentstöfum, er svo auðvitað listasmíði; fletaskurðir í glerinu eru óður til eimunartækninnar sem felur í sér umrædda demantasíun sem dauðhreinsar smæstu agnir úr vínandanum áður en að átöppun kemur, en vörumiðinn er ber flauelskennda áferð og tónar fallega við silfraða flöskuna.

50% Alc / 1000 ml / Glerflaska / Skrúftappi
Weight 1,6 kg
Upprunaland

Þýskaland

Hérað

Oelde

Framleiðandi

Schwarze & Schlichte GmbH & Co. KG

Stíll

Brunnáfengi / Eimað áfengi

Hráefni

Evrópskt glútenlaust úrvalskorn

Eimunaraðferð

Eimaður fjórum sinnum, demantasíaður

Litur

Tær og litlaus

Eigindi

Hágæða þýskt vodka; silkimjúkur gómur, milt eftirbragð og prýðiskostur í allra besta kokteilinn.

Styrkleiki

50%

Magn

1000ml

Umbúðir

Glerflaska, skrúftappi

Related products

  • Uppselt

    Smirnoff No. 21 Classic Vodka (1000 ml)

    12.499kr.
    Read more
  • Uppselt

    Absolut Vodka (1000 ml)

    12.799kr.
    Read more
  • Uppselt

    Helix Vodka (700 ml)

    10.299kr.
    Read more
Ef eitthvað er óljóst endilega hafðu samband

782-8800

info@nyjavinbudin.is


Greiðsluvalmöguleikar

Gagnlegir tenglar

Hafa samband
Vöruafgreiðsla
Sendingar útá land
Ábendingar
Skilmálar

Allur réttur áskilinn © 2021 - 2024 Nýja Vínbúðin | Sett upp af Vefmynd.net
  • Kaupskilmálar
  • Persónuvernd
  • Vafrakökur
Mín síða
0

0kr.

✕

Login

Lost your password?

Create an account?