Bollinger La Grande Année Rosé Brut Champagne (750 ml)
31.500kr.
Þrúga: Pinot Noir, Chardonnay
Rósgullið og fremur þurrt, franskt rósakampavín. Ferskja, villt hindber, ristaðar möndlur, fíkja, margslungið. Langt eftirbragð. Mjúk og þung fylling, afar fersk sýra, þétt og flauelskennd freyðing. Kjörhiti milli 8 – 10°C.
12% Alc / 750 ml / Glerflaska / Korktappi
ATH: Á þessari vöru er eins dags afhendingarfrestur.
Fleiri en 20 stk eru til á lager
Bollinger La Grande Année Rosé Brut Champagne
Þrúga: Pinot Noir, Chardonnay
Rósgullið og fremur þurrt, franskt rósakampavín.
Ferskja, villt hindber, ristaðar möndlur, fíkja, margslungið. Langt eftirbragð.
Mjúk og þung fylling, afar fersk sýra, þétt og flauelskennd freyðing.
Vandað borðvín á pari við svínasteik, feita fiskrétti, blandað sjávarfang og / eða þroskaða og bragðmikla osta. Kjörhiti um 8 og 10°C.
12% Alc / 750 ml / Glerflaska / Korktappi
Vissir þú að …
Franska vöruheitið „Champagne“ er lögverndað afurðaheiti, en afurðaheitið má einungis nefna þau freyðivín (kampavín) sem eiga uppruna að rekja til Champagne-sýslu sem er víðfrægt ræktunarsvæði í Frakklandi. Champagne (sem er kampavín, á íslenskri tungu) er framleitt samkvæmt sérstökum reglugerðum sem snúa að grónum ræktunarvenjum víngarða, ásamt því sem gerjun og öldrunarferli lúta háþróuðum og afar rótgrónum hefðum. Fyrrgreint er ákvarðað og bundið í lög af Appellation d’Origine Contrôlée (AOC), sem er frönsk upprunaverndarlöggjöf, en sambærilega og samræmda löggöf má einnig finna innan Evrópusambandsins undir formerkjunum PDO og PGI.
Hérlendis ber löggjöfin heitið „Afurðaheiti“ en það er nafn sem notað er yfir þær landbúnaðarafurðir sem njóta lögbundinnar hugverkaverndar og framleiddar eru á sérstökum svæðum eða samkvæmt tiltekinni hefð, rétt eins og farið er um Champagne Bollinger sem á rætur að rekja til franska héraðsins Aÿí-Champagne sem hvílir mitt í hjarta Champagne sýslu í norð-austurhluta Frakklands.
Þetta mun svarið við þeirri (áleitnu) spurningu því vönduð freyðivín sem eru framleidd eftir sömu aðferð en á öðrum landsvæðum bera önnur nöfn á borð við Cava (Spánn), Prosecco (Ítalía), Sekt (Þýskaland) eða bera einfaldlega heitið Brut (freyðivín) ef um er að ræða framleiðslu frá þeim landsvæðum heims sem státa ekki af lögvernduðum afurðaheitum í þessa veru.
Um franska kampavínshéraðið sjálft gildir afurðaheitið Champagne, en þrúguafbrigðin eru iðulega blanda; Chardonnay, Pinot Noir og Pinot Meunier. Sértækar þrúgur eru misjafnar meðal framleiðanda og uppskeran frábrugðin frá einu ári til annars. Algengt er að framleiðendur velji úrval blandaðra uppskera og ber þá kampavínið einnig merkið N.V. sem merkir „Non Vintage“ og segir til um að um fremstu þrúgur hvers árangs sé að ræða.
Að lokum má geta þess að sum afbrigði Champagne (kampavíns) er framleitt úr hvítum þrúgum og er þá sérmerkt sem „Blanc de Blancs“ (ef einungis um hvít þrúguafbrigði er að ræða, eða Chardonnay) en „Blanc de Noirs“ heitið merkir að vínið er gerjað úr rauðum þrúgum; Pinot Noir, Pinot Meunier eða jafnvel blöndu af báðum þrúgum.
<
Þyngd | 2,5 kg |
---|---|
Upprunaland | Frakkland |
Hérað | Champagne |
Framleiðandi | Bollinger |
Stíll | French Champagne |
Þrúga | Chardonnay, Pinot Noir |
Litur | Rósgyllt |
Eigindi | Fremur þurrt, mjúk og þung fylling, afar fersk sýra, þétt og flauelskennd freyðing. |
Matarpörun | Svínabógur, feitir fiskréttir, blandað sjávarfang, þroskaðir og bragðmiklir ostar. |
Magn | 750ml |
Styrkleiki | 12% |
Umbúðir | Glerflaska, korktappi |
Ofnæmi | Súlfatar (Sulfites) |