nyja-logo-smallnyja-logo-smallnyja-logo-smallnyja-logo-small
  • Heim
  • Verslun
  • Vöruafgreiðsla
  • Um okkur
  • Hafa samband
✕
0

0kr.

Mín síða

Three Sixty Vodka Original (3000 ml)

39.800kr.

Vegan / Glútenlaust

Three Sixty Vodka Original er evrópskt úrvalsvodka, fjóreimað og demantasíað fyrir átöppun; vönduð þýsk gæðaframleiðsla sem er framleidd úr hágæða glútenlausu hveiti og alfarið laus við ofnæmisvalda og dýraafurðir.

Aðlaðandi og sérstyrkt hágæða vodka með 37,5% vínanda, sem gerir drykkinn tilvalinn í kokteila og sérlagaða drykki, en silfruð og fletaskorin flaskan er listilegur óður til fagurra síðkvölda og er sannkallað augnakonfekt fyrir betri vínskápinn.

37,5% Alc / 3000 ml / Glerflaska / Skrúftappi

Out of stock

Fá tilkynningu

SKU: sch0004 Categories: 360 Vodka, Vodka
Share
  • Description
  • Additional information

Three Sixty Vodka Original 

Vegan / Glútenlaust

Three Sixty Vodka Original er evrópskt úrvalsvodka; vönduð þýsk gæðaframleiðsla í glæstri og sérhannaðri, fletaskorinni glerflösku sem ber vott um vandvirkni, metnað og gæði að ógleymdri útlitshönnun sem gerir sjálfa flöskuna að glæstum kosti í betri vínskápinn.

Glútenlaust: Hágæða hveitivinnsla

Three Sixty Vodka línan er framleidd úr hágæða, evrópsku hveiti sem er sérræktað og sérunnið eftir afar ströngum gæðastöðlum og inniheldur engar glútenagnir, þar sem sérstöku ensími er beitt á ræktunarstigi brýtur niður glúten, ásamt því sem eimunarferlið sjálft afmáir allar glútenagnir. Þess má þá einnig geta að engar dýraafurðir fara í framleiðsluna, sem gæða þennan gæða-vodka hinum eftirsóknarverða Vegan-gæðastimpli.

Fjórföld eimun: Demantasíun

Fjórföld eimun er framkvæmd eftir ströngustu gæðastöðlum og er vínið að lokum síað með allsérstæðri demantssíun sem fjarlægir allra smæstu svifagnirnar úr sjálfu eimunarkerinu; en með slíkri síunaraðferð er eimunarmeistaranum unnt að sía frá agnir að allt að þúsundasta úr millimetra út áður en kristaltærum vínandanum er loks tappað á flöskur.

Fletaskorin glerflaska: Listrænn óður til síunartækni

Sjálf flaskan, sem er tær og ber silfraða tóna er glæst listasmíði; fletaskurðir í glerinu er listrænn óður til eimunartækninnar sem felur í sér umrædda demantasíun sem dauðhreinsar smæstu agnir úr vínandanum áður en að átöppun kemur, en vörumiðinn er silfraður með flauelskenndri áferð og tónar fallega við silfraða, upphleypta stafina sem prýða flöskuna.

Glútenlaus demantur í bestu kokteilana

Three Sixty Vodka Original er framleitt úr hreinræktuðu þýsku hveiti sem er glútenlaust, laust við dýraafurðir og skaðlega ofnæmisvalda. Hágæða þýskt vodka; silkimjúkur gómur, milt eftirbragð og prýðiskostur í allra besta kokteilinn, að ógleymdri flöskunni sem er listasmíði og fer vel í betri vínskápnum.

37,5% Alc / 3000 ml / Glerflaska / Skrúftappi
Upprunaland

Þýskaland

Hérað

Oelde

Framleiðandi

Schwarze & Schlichte GmbH & Co. KG

Stíll

Brunnáfengi / Eimað áfengi

Hráefni

Evrópskt glútenlaust úrvalskorn

Eimunaraðferð

Eimaður fjórum sinnum, demantasíaður

Litur

Tært og litlaust

Eigindi

Hágæða þýskt vodka; silkimjúkur gómur, milt eftirbragð og prýðiskostur í allra besta kokteilinn.

Styrkleiki

37,5%

Magn

3000ml

Umbúðir

Glerflaska, skrúftappi

Related products

  • Uppselt

    Three Sixty Vodka Black42 (700 ml)

    10.900kr.
    Read more
  • Uppselt

    Reyka Vodka (700 ml)

    10.499kr.
    Read more
  • Three Sixty Vodka Original (6000 ml)

    84.000kr.
    Add to cart
Ef eitthvað er óljóst endilega hafðu samband

782-8800

info@nyjavinbudin.is


Greiðsluvalmöguleikar

Gagnlegir tenglar

Hafa samband
Vöruafgreiðsla
Sendingar útá land
Ábendingar
Skilmálar

Allur réttur áskilinn © 2021 - 2024 Nýja Vínbúðin | Sett upp af Vefmynd.net
  • Kaupskilmálar
  • Persónuvernd
  • Vafrakökur
Mín síða
0

0kr.

✕

Login

Lost your password?

Create an account?