Smirnoff Ice Original (Áldós / 250 ml)
599kr.
Smirnoff Ice Original er gráleitur og léttskýjaður maltdrykkur, með lágu áfengisinnihaldi (einungis 4% Alc.) og er tilbúinn til drykkjar beint úr dós. Við mælum með að smella dósinni fyrst í kæli og njóta svo!
4% Alc. / 250 ml / Áldós
Out of stock
Fá tilkynningu
Smirnoff Ice Original
Hér fer „forblandaður og fisléttur“ maltdrykkur með afar lágu áfengisinnihaldi úr smiðju Smirnoff. Öfugt við það sem ætla mætti, inniheldur Smirnoff Ice ekki vodka. Þó drykkurinn sé vissulega framleiddur af Smirnoff, sem er einn stærsti vodkaframleiðandi heims, er ekkert brennt vín að finna í neinni bragðtegund af Smirnoff Ice línunni. Reyndar, rétt eins og farið er um aðra maltdrykki, er Smirnoff Ice Original, sem kemur tilbúinn og „forblandaður“ í handhægri 250 ml áldós, framleiddur á sambærilegan máta og hefð er fyrir, þegar bjór er bruggaður.