Jólabjórdagatal 2024
19.800kr.
Á bak við hvern og einn af 24 gluggum þessa fallega hannaða aðventudagatals er 330 ml dós af bjór sem tryggt er að kæti bragðskynið.
Fimm stjörnu dagatalið inniheldur blöndu af gæða jólabjór frá Íslandi, Danmörku og Þýskalandi.
Hin fjölbreytta blanda af bragði mun örugglega leiða til nýs uppáhalds.
ATHUGIÐ TAKMARKAÐ MAGN – EINUNGIS 800 DAGATAÖL Í BOÐI, FYRSTUR KEMUR FYRSTUR FÆR
In stock
- Á bak við hvern og einn af 24 gluggum þessa fallega hannaða aðventudagatals er 330 ml dós af bjór sem tryggt er að kæti bragðskynið.
Fimm stjörnu dagatalið inniheldur blöndu af gæða jólabjór frá Íslandi, Danmörku og Þýskalandi.
Hin fjölbreytta blanda af bragði mun örugglega leiða til nýs uppáhalds.
Sérstakir jólabjórar hafa orðið sífellt meira áberandi undanfarin ár. Nú er að finna meira úrval af sérstökum jólabjórum en nokkru sinni fyrr. Áhuginn er mikill og stundum finnst okkur verslunarmannahelgin varla liðin þegar viðskiptavinir byrja að spyrja um jólabjórinn!
Flestir framleiðendur nota meira ristað malt í bjórframleiðsluna fyrir jólahátíðina. Hinn hefðbundni jólabjór er því dekkri á litinn en klassíski lagerbjórinn. Má segja að flestir þessara bjóra standi hinum þekktu Classic bjórum næst.
Einnig eru í boði margskonar forvitnilegir og verulega öðruvísi jólabjórar, en allra hörðustu bjóráhugamenn landsins hafa mestan áhuga fyrir slíkum bjórum. Það er þá mikið kryddaður og bragðsterkur bjór, sem oftar en ekki er hlaðinn margskonar bragðtegundum sem almenningur tengir við jólahaldið.
En hvernig hófst þetta allt saman? Til eru frásagnir frá víkingatímanum um að norrænir víkingar hafi bruggað sérstaklega bragðmikið og sterkt öl til þess að fagna sólstöðum. Það var auðvitað ærið tilefni til þess að gleðjast, þegar daginn fór að lengja á ný. Það er því ekkert nýtt að framleitt sé sérstakt hátíðaöl að vetri til og eðlilegt er að það sé kraftmikið og gefi einhvern hita í kroppinn.
Hákon konungur setti fyrr á öldum lög í Noregi sem kváðu á um að öll heimili í landinu skyldu brugga lágmarksmagn af öli til þess að fagna jólum. Væri ekki farið að lögum og ölið bruggað skyldi því heimili hegnt. Refsingin gat verið í formi peningasektar, en gat einnig þýtt að heimilið eða húseignir yrðu boðnar upp.
Það er síðan ekki fyrr en í kringum aldamótin 1900 sem að jólabjórinn, sem við nú þekkjum, kom fyrst á markað. Löndin í Skandinavíu voru fyrst til þess að byggja upp þessa jólabjórahefð af alvöru. Enn eru það frændur vorir í Danmörku sem gera mikið út á jólabjórinn og þá helst framleiðandinn Tuborg, en að sjálfsögðu framleiða flestir aðrir bjórframleiðendur í Danmörku einhverskonar útgáfu af jólabjór. Norður- Evrópa og Bretland fylgdu í kjölfarið og núna er þetta orðin alger della í Bandaríkjunum. Enginn veit hvert þetta mun leiða, en það er nokkuð víst að framleiðendur hafa gaman af þessu og ef markaðurinn er móttækilegur þá er sjálfsagt að uppfylla kröfur hans.
Hér að neðan er dæmi um Jólabjóra sem verða í dagatölunum, listinn er ekki endilega tæmandi og að sjálfssögðu komast ekki allar tegundirnar fyrir í einu dagatali.
Albani Jule Bryg Blaa Lys 330ml dós 7%
Albani Jule Bryg Rödhætte 330ml dós 5,5%
Almáttugur Steðji 330ml 6%
Blessaður jólabjór Steðja 330ml 5,4%
Boli Doppelbock jólabjór 330ml 7,5%
Delirium Christmas 330ml 10%
Einstök Doppelbock 330ml 6,7%
Einstök Winter Ale 330ml 8%
Fagnaðarerindið II 440ml dós 5,5%
Föroya Jóla Bryggj 330ml 5,8%
Gouden Carolus Christmas 330ml 10,5%
Harboe Jule Bryg 330ml dós 5,7%
Hoppy Christmas 330ml 7,2%
Hvít Jól – Mandarínu White Ale 330ml 5%
Jóla Kaldi 330ml 5,4%
Jóla Kaldi Súkkulaði Porter 330ml 6,5%
Jóla Tumi/ Jul Time 330ml dós 5,6%
Jóla Huml – IPA 330ml 6%
Jólagull 330ml 5,4%, 330 ml dós
Jólakisi 473ml 7%
Leppur 330ml 6,5%
Mikkeller Ginger Brett IPA 330ml 6,9%
Mikkeller Hoppy LovinChristmas 330ml 7,8%
NIce Chouffe 330ml 10%
Okkara Jól 330ml 5,8%
Ósló Brewing Red and Wheat Christmas 330ml 5,9%
Royal X-Mas blár 330ml dós 5,6%
Royal X-Mas hvítur 330ml dós 5,6%
Rúdolf – Heslihnetubrúnöl 330ml 6%
Röndólfur Jólabjór 330ml 6,7%
Samuel Adams Winter Lager 355ml 5,5%
Santa Gose 330ml 4%
Segull 67 Jóla Bjór 330ml 5,4%&
Weight | 8,5 kg |
---|