279kr.
Gullinn. Ósætur, léttur, lítil beiskja. Léttur korn og humlakeimur.
Fleiri en 20 stk eru til á lager
Gullinn. Ósætur, léttur, lítil beiskja. Léttur korn og humlakeimur.
Eins og nafnið gefur til kynna má hér finna lagerbjóra sem sem hafa þó nokkuð jafnvægi á milli humla og malts. Humlaeinkenni og maltsæta eru ekki mjög áberandi en þeir hafa þó aðeins meiri fyllingu og karakter en léttir lagerbjórar og American Adjunct bjórar.
Ljós lager er vinsælasti flokkur bjórs í dag og á rætur sínar að rekja til borgarinnar Pilsen í Tékklandi. Þetta eru undirgerjaðir bjórar og eru eins og nafnið gefur til kynna ljósir eða gullinn á lit og flestar tegundir bragðmildar, þó með undantekningum. Algengast er að vínandastyrkur sé á bilinu 4,5% – 5,6% en þó eru til tegundir sem hafa minni styrkleika eða meiri. Ljósir lager bjórar eiga að vera ferskir og brakandi og bragð einkennist af korninu sem notað er við framleiðslu bjórsins, nokkuð mikilli freyðingu, og fremur lítilli til miðlungs beiskju. Humlar eru notaðir sem mótvægi við sætuna í maltvökvanum.