12.549kr.
Brennivín er íslenskt brennt vín, tært og litlaust. Brennivín er bruggað í Reykjavík, úr gerjuðum kartöflum og er kryddað með kúmeni. Rífandi heitt og langt eftirbragð.
Ekki til á lager
Brennivín eða Svarti dauði kom fyrst til sögunnar árið 1935 þegar áfengisbanni á Íslandi var að hluta til aflétt. Upphaflega var svarti merkimiðinn á flöskunni valinn til þess að gera vöruna óaðlaðandi og takmarka eftirspurn en vildi ekki betur til en svo að merkimiðinn hafði þveröfug áhrif og varð brennivín fljótt afar vinsæll drykkur. Í dag er merkimiðinn vel þekkt tákn fyrir þennan þjóðardrykk Íslendinga og þjóðina sjálfa, en þessar upplýsingar eru fengnar af vef Ölgerðarinnar, sem framleiðir íslenskt brennivín fyrir hérlendan og erlendan markað.
Brennivín er íslenskt brennt vín, tært og litlaust.
Brennivín er bruggað í Reykjavík, úr gerjuðum kartöflum og er kryddað með kúmeni.
Bragðeigindi eru heit og sterk, svo örlar á sætuvotti og mjúkum kúmenkeim.
Rífandi heitt og langt eftirbragð.
Upprunaland | Ísland |
---|---|
Hérað | Reykjavík |
Framleiðandi | Ölgerðin Egill Skallagrímsson |
Litur | Tært og litlaust |
Styrkleiki | 37,5% |
Magn | 1000ml |
Umbúðir | Glerflaska, skrúftappi |
Viðbótarupplýsingar | Þekktir ofnæmisvaldar eru kartöflusterkja og kúmen. Vinsamlegast athugið að framleiðandi ber ábyrgð á að skráningu allra innihaldsefna sem geta valdið ofnæmi. Lesið vörumiða á umbúðum eða hafið beint samband við framleiðanda sé nánari upplýsinga um innihaldsefni óskað. |