Baileys Chocolat Luxe Liqueur (500 ml)
5.139kr.
Viðhafnarútgáfa af hinum sívinsæla Baileys; ljóskaramellubrúnn og rjómalagaður, írskur viskílíkjör með dísætum kókos- og dökkum súkkulaðiilm. Rjómakennd og mjúk fylling, dökkt súkkulaði, ristaðar kakóbaunir og dísætur karamellublær. Löng og dísæt áferð.
15,7% Alc / 500 ml / Glerflaska / Skrúftappi
Ekki til á lager
Fá tilkynningu
Vissir þú að …
… Baileys Chocolate Luxe er enginn venjulegur súkkulaðilíkjör, en þróunarferlið sjálft spannaði ríflega þrjú ár. Yfirmaður hönnunarteymis Baileys ferðaðist um einar þrjár heimsálfur til þess eins að bragða, í eigin persónu, á yfir 200 bragðtegundum af besta súkkulaði heims og prófaði einar 800 uppskriftir, þar á meðal Madagaskar-vanillubættan líkjör sem úr varð, loks, umrædd viðhafnarútgáfa …
Baileys Chocolat Luxe
Viðhafnarútgáfa af hinum sívinsæla Baileys; ljóskaramellubrúnn og rjómalagaður, írskur viskílíkjör með dísætum kókos- og dökkum súkkulaðiilm. Rjómakennd og mjúk fylling, dökkt súkkulaði, ristaðar kakóbaunir og dísætur karamellublær. Löng og dísæt áferð.
Baileys Chocolat Luxe ætti að geyma í kæli fyrir framreiðslu og hrista vel áður en líkjörinn er borinn fram. Hæfir vel óblandaður á ísmola í fallegu glasi, sem ljúffeng sósa beint út á sæta og ljúffenga eftirrétti eða / og sem uppistöðuefni í vandaða kokteila.
15,7% Alc / 500 ml / Glerflaska / Skrúftappi
Þyngd | 1,2 kg |
---|---|
Upprunaland | Írland |
Framleiðandi | R & A Bailey & Co. |
Stíll | Rjómalíkjör / Viskílíkjör |
Litur | Ljóskaramellubrúnn |
Eigindi | Rjómakennd og mjúk fylling, dökkt súkkulaði, ristaðar kakóbaunir og dísætur karamellublær. Löng og dísæt áferð sem og eftirbragð. |
Styrkleiki | 15,7% |
Magn | 500ml |
Umbúðir | Glerflaska, skrúftappi |
Ofnæmi | Mjólkurofnæmi / Laktósaofnæmi |