Skilmálar NýjaVínbúðin.is
1. Almenn ákvæði
Skilmálar þessir gilda um kaup á vöru eða þjónustu á vefsvæðinu www.NýjaVínbúðin.is. Eigandi NýjaVínbúðin.is er í eigu GCD ltd. Til einföldunar verður hér eftir talað um GCD ltd eða www.NýjaVínbúðin.is eða NýjaVínbúðin sem NýjaVínbúðin.is. Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur NýjaVínbúðin.is annars vegar og kaupanda vöru eða þjónustu hins vegar. Hafi skilmálar þessir ekki verið samþykktir við nýskráningu á vefsíðu NýjaVínbúðin.is teljast þeir samþykktir við fyrstu kaup á vöru eða þjónustu.
„Kaupandi“ er einstaklingur sem er aðili samnings en stundar ekki viðskipti eða aðra athafnastarfsemi, þ.e. einstaklingur sem kaupir vöru eða þjónustu í skilningi laga um neytendakaup nr. 48/2003. Kaupandi verður að vera a.m.k. 20 ára. „Kaupandi“ getur líka verið fyrirtæki, en lög um þjónustukaup nr. 42/2000 eiga þá við. Þessi lög gilda um réttarstöðu samningsaðila þegar sérstökum ákvæðum þessara skilmála sleppir. NýjaVínbúðin.is selur vörur eða þjónustu til kaupanda á vefsvæði sínu. NýjaVínbúðin býður einnig kaupanda að fá vöruna senda heim til sín eða sækja í þjónustuver.
2. Upplýsingar og verð
Verð á vefsvæði NýjaVínbúðin.is og í útsendum póstum eru með virðisaukaskatti og birt með fyrirvara um innsláttarvillur, prentvillur og myndvillur. NýjaVínbúðin.is áskilur sér rétt til að afturkalla pantanir í heild eða að hluta ef viðkomandi vara er uppseld, skemmd eða gölluð. NýjaVínbúðin mun upplýsa kaupanda um slíkt eins fljótt og kostur er og hugsanlega koma með tillögu að annarri vöru sem kaupandi getur samþykkt eða hafnað.
3. Persónuupplýsingar
Á NýjaVínbúðin.is er aðgengileg persónuverndarstefna félagsins. Í þessari persónuverndaryfirlýsingu kemur fram hvernig NýjaVínbúðin.is umgengst þær persónuupplýsingar sem NýjaVínbúðin.is geymir um kaupanda og hvaða réttindi hann á varðandi upplýsingarnar.
4. Aðgangur
Kaupandi hefur leyfi til að nota NýjaVínbúðin.is og þá þjónustu sem þar er boðið upp á í samræmi við skilmála þessa og þær aðgangstakmarkanir sem NýjaVínbúðin.is setur. Stranglega er bannað að falsa nafn og persónuupplýsingar við skráningu inn á NýjaVínbúðin.is. NýjaVínbúðin.is áskilur sér rétt til að vinna náið með lögreglu við úrlausn slíkra mála, þ.m.t. að veita henni þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru. Verði kaupandi uppvís að sviksamlegu athæfi við kaup á NýjaVínbúðin.is verður það tilkynnt til lögreglu. NýjaVínbúðin.is áskilur sér rétt til að takmarka eða loka fyrir aðgang að NýjaVínbúðin.is ef grunur leikur á að kaupandi hafi orðið uppvís að falsa nafn og persónuupplýsingar við skráningu.
5. Innskráning, pöntun og afhending
Við fyrstu innskráningu á NýjaVínbúðin.is skráir kaupandi fullt nafn, kennitölu, heimilisfang og tölvupóstfang sitt og samþykkir að hann hafi lesið persónuverndarstefnu félagsins. Einnig getur kaupandi samþykkt að vera á póstlista og SMS lista NýjaVínbúðin.is. Pöntun kaupanda á NýjaVínbúðin.is er bindandi þegar hann hefur staðfest pöntun sína í kaupferlinu. NýjaVínbúðin.is er skuldbundið að afgreiða pöntun kaupanda (nema í tilvikum sem nefnd eru í 2. grein) og sendir kaupanda staðfestingu með SMS og tölvupósti. Jafnframt sendir NýjaVínbúðin.is kaupanda afrit af reikningi ef greiðsla berst frá kaupanda. Kaupandi er hvattur til að yfirfara pöntunarstaðfestingu þegar hún berst. Í kaupferlinu velur kaupandi sér sendingarleið og sendingartíma. NýjaVínbúðin.is leggur sig fram um að afhenda vöru á réttum tíma til kaupanda og upplýsir hann með SMS hvenær vara er væntanleg til hans.
6. Yfirferð á vöru
Eftir að kaupandi hefur móttekið pöntunina þarf hann að kanna hvort hún sé í samræmi við pöntunarstaðfestingu og reikning. Ef kaupandi telur að varan sé ekki í samræmi við vörulýsingu þarf hann að senda tilkynningu þess efnis með tölvupósti eða hafa samband við þjónustuver NýjaVínbúðinnar. NýjaVínbúðin áskilur sér rétt til að sannreyna slíkar staðhæfingar innan 7 daga.
7. Samningurinn
Með greiðslu staðfestir kaupandi að hann þekki gildandi skilmála NýjaVínbúðin.is. Skilmálarnir eru aðgengilegir á vefsvæði NýjaVínbúðin.is. Hver kaup eru bindandi fyrir kaupanda samkvæmt skilmálum og skilyrðum NýjaVínbúðin.is.
8. Greiðsla
- Kredit- eða debetkort: Greiðsla fer fram í gegnum örugga greiðslugátt þegar kaupandi staðfestir upplýsingar.
- Millifærsla: Ef óskað er eftir að greiða með millifærslu þarf kaupandi að millifæra á reikning GCD ltd og setja pöntunarnúmer í tilvísun. Ef greiðsla berst ekki innan tveggja daga fellur pöntunin niður.
9. Skilaréttur
NýjaVínbúðin.is skuldbindur sig til að afhenda kaupanda vöru eða þjónustu í samræmi við skilmála þessa og gildandi rétt. Kaupandi getur ekki skilað vöru nema hún sé í óopnuðum umbúðum. Ef til endurgreiðslu kemur innan 14 daga frá kaupum endurgreiðir NýjaVínbúðin.is kaupanda á sama hátt og hann greiddi – með bakfærslu, innlögn eða inneign hjá NýjaVínbúðin.is.
10. Galli
Ef vara er gölluð er NýjaVínbúðin.is skylt að bjóða kaupanda nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Tilkynna þarf galla innan tveggja mánaða frá því að kaupandi varð hans var. NýjaVínbúðin áskilur sér rétt til að sannreyna galla innan 7 daga.
11. Ábyrgð
Ábyrgð NýjaVínbúðin.is hefur ekki í för með sér takmörkun á rétti samkvæmt lögum um neytendakaup nr. 48/2003. Ef sala er til fyrirtækis gildir eins árs ábyrgð samkvæmt lögum nr. 50/2000.
12. Eignarréttur
Seldar vörur eru eign GCD ltd þar til kaupverð er greitt að fullu.
13. Annað
NýjaVínbúðin.is áskilur sér rétt til að breyta ákvæðum skilmálanna. Birting nýrra skilmála á vefsíðu telst fullnægjandi tilkynning.
14. Ágreiningur
Rísi ágreiningur má bera mál undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárkaupa eða fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur samkvæmt lögum nr. 91/1991.
15. Gildistími
Skilmálar þessir gilda frá 1. júlí 2021.
