59.800kr.
Whisky Premium Edition Aðventudagatal 2023 Þú finnur enga súkkulaðibita hér! Inni í hverjum og einum 24 glugga Whisky Premium Edition aðventudagatali 2023, er að finna eina 30 ml bragðprufu (sýnishorn) af hágæða viskíi frá framúrskarandi viskíframleiðendum víðsvegar að, sem viskísérfræðingar Drinks By The Drams hafa valið af alúð og natni fyrir jólin í ár!
Available on backorder
The Whisky Premium Edition Aðventudagatal 2023 Þú finnur enga súkkulaðibita hér! Inni í hverjum og einum 24 glugga The Whisky Premium Edition aðventudagatali 2023, er að finna eina 30 ml bragðprufu (sýnishorn) af hágæða viskíi frá framúrskarandi viskíframleiðendum víðsvegar að, sem viskísérfræðingar Drinks By The Drams hafa valið af alúð og natni fyrir jólin í ár!
Ævintýralega góðar, 24 litlar bragðprufur af vönduðu viskí. „Premium“ viskíaðventudagatalið frá Drinks by the Dram er sannarlega forvitnilegt tækfæri til að kynnast 24 vönduðum viskíafbrigðum! Fagurlega skreytt aðventudagatal, sneisafullt af úrvalsviskíi, sem leiðir þig í gegnum aðventuna og alla leið inn í jólin; með ólíkum bragðeigindum og hvert með sinn sérstaka stíl.
Inni í hverjum og einum 24 glugga The Whisky Premium Edition aðventudagatali 2023, er að finna eina 30 ml bragðprufu (sýnishorn) af hágæða viskíi sem viskísérfræðingar Drinks By The Drams hafa valið af alúð og natni fyrir jólin í ár! Eftirfarandi upplýsingar um innihald, eru fengnar af vef Masters of Malt – smellið á tenglana til að fræðast um hverja og eina gerð af viskíi.
Sérvalin, vönduð og eftirsótt viskí leynast bak við hvern glugga, en Premium Edition viskíaðventudagatalið frá Drinks by the Dram er sannarlega forvitnilegt tækfæri til að kynnast 24 þroskuðum og bragðmiklum viskíafbrigðum! Fagurlega skreytt aðventudagatal, sneisafullt af gæðaviskíi, sem leiðir þig í gegnum aðventuna og alla leið inn í jólin; með ólíkum bragðeigindum og hvert með sinn sérstaka stíl.
Hver og ein 30 ml braðgprufa er handvalin af sérfræðingum Drinks by the Dram´s sem af kostgæfni og alúð, hafa raðað afar vönduðu og sérstæðu, japönsku viskíi í hvern einasta glugga! Sjálft dagatalið er úr pappír og er endurvinnanlegt, en 30 ml flöskurnar eru úr gleri og endurvinnsluhæfar en lokið er vaxborið innsigli sem hægt er að skola af fyrir endurvinnslu, og þar ráða umhverfisverndarsjónarmið för.
The Whisky Premium Edition aðventudagatal ársins 2023, er frábær tækifærisgjöf fyrir viskí-áhugafólk, ljúf leið til að njóta síðkvölda á aðventu og ljúffeng leið til að læra meira um afbrigði sjaldgæfra og aldraðra viskíafbrigða. Hér að neðan má lesa og fræðast örlítið meira um hluta úrvals The Whisky Premium Edition aðventudagatalinu, en listinn er þó ekki alveg tæmandi, enda væri ekkert varið í að fá að opna alla pakkana strax!
Vinsamlega athugið: Örlitlar líkur eru á því að innihald jóladagatalsins geti hnikað örlítið frá uppgefnu innihaldi sem hér má lesa um – en áhyggjur eru þó með öllu óþarfar, þar sem hver og einn gluggi í jóladagatali ársins 2023 mun innihalda úrvalsviskí, sem fellur óaðfinnanlega að smekk jafnvel kröfuhörðustu viskíunnenda. Hver og ein 30 ml bragðprufa (sýnishorn) sem jóladagatal ársins 2023 inniheldur, var handvalin af natni og alúð af sérfræðingum Drinks by the Dram’s – en auk þeirra sérvöldu, sjaldgæfu og öldruðu viskítegunda sem koma fram hér, eru önnur viskíafbrigði sem dagatalið kann að innihalda, í sama gæða- og verkflokki, enn ótalin og koma ljúflega á óvart!