Three Sixty Vodka Original (500 ml)
7.500kr.
Three Sixty Vodka Original er evrópskt úrvalsvodka, fjóreimað og demantasíað fyrir átöppun; vönduð þýsk gæðaframleiðsla sem er framleidd úr hágæða glútenlausu hveiti og alfarið laus við ofnæmisvalda og dýraafurðir. Aðlaðandi og sérstyrkt hágæða vodka með 37,5% vínanda, sem gerir drykkinn tilvalinn í kokteila og sérlagaða drykki, en silfruð og fletaskorin flaskan er listilegur óður til fagurra síðkvölda og er sannkallað augnakonfekt fyrir betri vínskápinn.
37,5% Alc / 500 ml / Glerflaska / Skrúftappi
Out of stock
Fá tilkynningu
Three Sixty Vodka Original
Vegan / Glútenlaust
Three Sixty Vodka Original er evrópskt úrvalsvodka; vönduð þýsk gæðaframleiðsla í glæstri og sérhannaðri, fletaskorinni glerflösku sem ber vott um vandvirkni, metnað og gæði að ógleymdri útlitshönnun sem gerir sjálfa flöskuna að glæstum kosti í betri vínskápinn.
Glútenlaust: Hágæða hveitivinnsla
Three Sixty Vodka línan er framleidd úr hágæða, evrópsku hveiti sem er sérræktað og sérunnið eftir afar ströngum gæðastöðlum og inniheldur engar glútenagnir, þar sem sérstöku ensími er beitt á ræktunarstigi brýtur niður glúten, ásamt því sem eimunarferlið sjálft afmáir allar glútenagnir. Þess má þá einnig geta að engar dýraafurðir fara í framleiðsluna, sem gæða þennan gæða-vodka hinum eftirsóknarverða Vegan-gæðastimpli.
Fjórföld eimun: Demantasíun
Fjórföld eimun er framkvæmd eftir ströngustu gæðastöðlum og er vínið að lokum síað með allsérstæðri demantssíun sem fjarlægir allra smæstu svifagnirnar úr sjálfu eimunarkerinu; en með slíkri síunaraðferð er eimunarmeistaranum unnt að sía frá agnir að allt að þúsundasta úr millimetra út áður en kristaltærum vínandanum er loks tappað á flöskur.
Fletaskorin glerflaska: Listrænn óður til síunartækni
Sjálf flaskan, sem er tær og ber silfraða tóna er glæst listasmíði; fletaskurðir í glerinu er listrænn óður til eimunartækninnar sem felur í sér umrædda demantasíun sem dauðhreinsar smæstu agnir úr vínandanum áður en að átöppun kemur, en vörumiðinn er silfraður með flauelskenndri áferð og tónar fallega við silfraða, upphleypta stafina sem prýða flöskuna.
Glútenlaus demantur í bestu kokteilana
Three Sixty Vodka Original er framleitt úr hreinræktuðu þýsku hveiti sem er glútenlaust, laust við dýraafurðir og skaðlega ofnæmisvalda. Hágæða þýskt vodka; silkimjúkur gómur, milt eftirbragð og prýðiskostur í allra besta kokteilinn, að ógleymdri flöskunni sem er listasmíði og fer vel í betri vínskápnum.
37,5% Alc / 500 ml / Glerflaska / Skrúftappi
Upprunaland | Þýskaland |
---|---|
Hérað | Oelde |
Framleiðandi | Schwarze & Schlichte GmbH & Co. KG |
Stíll | Brunnáfengi / Eimað áfengi |
Hráefni | Evrópskt glútenlaust úrvalskorn |
Eimunaraðferð | Eimaður fjórum sinnum, demantasíaður |
Litur | Tær og litlaus |
Eigindi | Hágæða þýskt vodka; silkimjúkur gómur, milt eftirbragð og prýðiskostur í allra besta kokteilinn. |
Styrkleiki | 37,5% |
Magn | 500ml |
Umbúðir | Glerflaska, skrúftappi |