52.900kr.
That Boutique-y Gin Company Aðventudagatal 2023 🎅🏼 Þú finnur enga súkkulaðibita hér! Inni í hverjum og einum 24 glugga That Boutique-y Gin Company aðventudagatali 2023, er að finna eina 30 ml bragðprufu (sýnishorn) af hágæða gini, sem ginsérfræðingar Drinks By The Drams hafa valið af alúð og natni fyrir jólin í ár!
Available on backorder
That Boutique-y Gin Company Aðventudagatal 2023 🎅🏼 Þú finnur enga súkkulaðibita hér! Inni í hverjum og einum 24 glugga That Boutique-y Gin Company aðventudagatali 2023, er að finna eina 30 ml bragðprufu (sýnishorn) af hágæða gini frá öllum heimshornum, sem ginsérfræðingar Drinks By The Drams í nánu samstarfi við That Boutique-y Company, hafa valið af alúð og natni fyrir hið árlega aðventudagatal árið 2023!
Inni í hverjum og einum 24 glugga Japanese [Kintsugi] Whisky aðventudagatali 2023, er að finna eina 30 ml bragðprufu (sýnishorn) af hágæða gini frá fremstu ginframleiðendum víða um veröld, sem ginsérfræðingar Drinks By The Drams hafa valið af alúð og natni fyrir jólin í ár! Eftirfarandi upplýsingar um innihald, eru fengnar af vef Masters of Malt – smellið á tenglana til að fræðast um hverja og eina gerð af gini.
Aðventudagatal That Boutique-y Gin Company í samstarfi við Drinks By the Drams er sannarlega forvitnilegt tækfæri til að kynnast 24 ólíkum ginafbrigðum viðsvegar frá um heiminn! Fagurlega skreytt aðventudagatal, sneisafullt af gini, sem leiðir þig í gegnum aðventuna og alla leið inn í jólin; með ólíkum bragðeigindum og hvert með sinn sérstaka stíl.
Hver og ein 30 ml braðgprufa er handvalin af sérfræðingum Drinks by the Dram´s og That Boutique-y Company, sem af kostgæfni og alúð, hafa raðað afar vönduðu og sérstæðum ginafbrigðum í hvern einasta glugga! Sjálft dagatalið er úr pappír og er endurvinnanlegt, en 30 ml flöskurnar eru úr gleri og endurvinnsluhæfar en lokið er vaxborið innsigli sem hægt er að skola af fyrir endurvinnslu, og þar ráða umhverfisverndarsjónarmið för.
That Boutique-y Gin Company – aðventudagatal ársins 2023, er frábær tækifærisgjöf fyrir gin-áhugafólk, ljúf leið til að njóta síðkvölda á aðventu og ljúffeng leið til að læra meira um afbrigði ginafbrigða um víða veröld. Hér að neðan má lesa og fræðast örlítið meira um hluta úrvals í That Boutique-y Gin Company aðventudagatalinu, en listinn er þó ekki alveg tæmandi, enda væri ekkert varið í að fá að opna alla pakkana strax!
Vinsamlega athugið: Örlitlar líkur eru á því að innihald jóladagatalsins geti hnikað örlítið frá uppgefnu innihaldi sem hér má lesa um – en áhyggjur eru þó með öllu óþarfar, þar sem hver og einn gluggi í jóladagatali ársins 2023 mun innihalda hágæða gin, sem fellur óaðfinnanlega að smekk jafnvel kröfuhörðustu ginunnenda.
Hver og ein 30 ml bragðprufa (sýnishorn) sem jóladagatal ársins 2023 inniheldur, var handvalin af natni og alúð af sérfræðingum Drinks by the Dram’s – en auk þeirra sérvöldu úrvalsgin-afbrigða sem koma fram hér, eru önnur ginafbrigði sem dagatalið kann að innihalda, í sama gæða- og verkflokki, enn ótalin og koma ljúflega á óvart!