198.000kr.
Old & Rare Whisky Aðventudagatal 2023 Þú finnur enga súkkulaðibita hér! Inni í hverjum og einum 24 glugga Old & Rare Whisky aðventudagatali 2023, er að finna eina 30 ml bragðprufu (sýnishorn) af hágæða viskíi frá framúrskarandi viskíframleiðendum víðsvegar að, sem viskísérfræðingar Drinks By The Drams hafa valið af alúð og natni fyrir jólin í ár!
Available on backorder
Athugið! The Old & Rare Whisky Aðventudagal 2023 er eingöngu selt í forsölu – pantaðu núna – og fáðu aðventudagatalið afhent þann 21. nóvember 2023!
Þú finnur enga súkkulaðibita hér! Inni í hverjum og einum 24 glugga The Old & Rare Whiskey aðventudagatali 2023, er að finna eina 30 ml bragðprufu (sýnishorn) af hágæða, sjaldgæfu og „gömlu“ viskíi frá frábærum viskíframleiðendum víðsvegar að, sem viskísérfræðingar Drinks By The Drams hafa valið af alúð og natni fyrir jólin í ár! Eftirfarandi upplýsingar um innihald, eru fengnar af vef Masters of Malt – smellið á tenglana til að fræðast um hverja og eina gerð af viskíi – en rétt er að geta þess að hágæða viskíglas frá Glencairn fylgir með þessu fallega aðventudagatali – til að skoða viskíglasið, smellið HÉR
Viskí er vissulega ekki allt jafnt að gæðum, en hér fara hins vegar 24 bragðprufur af sjaldgæfu, vel þroskuðu og „öldruðu“ viskí sem sumt hvert er framleitt í afar smáu upplagi, á sér ríka sögu, en The Old & Rare viskíaðventudagatalið frá Drinks by the Dram er sannarlega forvitnilegt tækfæri til að kynnast 24 sjaldgæfum og vel öldruðum viskíafbrigðum! Fagurlega skreytt aðventudagatal, sneisafullt af sjaldgæfu og öldruðu gæðaviskíi, sem leiðir þig í gegnum aðventuna og alla leið inn í jólin; með ólíkum bragðeigindum og hvert með sinn sérstaka stíl.
Hver og ein 30 ml braðgprufa er handvalin af sérfræðingum Drinks by the Dram´s sem af kostgæfni og alúð, hafa raðað afar vönduðu og sérstæðu, viskíi í hvern einasta glugga! Sjálft dagatalið er úr pappír og er endurvinnanlegt, en 30 ml flöskurnar eru úr gleri og endurvinnsluhæfar en lokið er vaxborið innsigli sem hægt er að skola af fyrir endurvinnslu, og þar ráða umhverfisverndarsjónarmið för.
Hér að neðan má lesa og fræðast örlítið meira um hluta úrvals The Old & Rare Whisky aðventudagatalinu, en listinn er þó ekki alveg tæmandi, enda væri ekkert varið í að fá að opna alla pakkana strax!
The Old & Rare Whisky – aðventudagatal ársins 2023, er frábær tækifærisgjöf fyrir viskí-áhugafólk, ljúf leið til að njóta síðkvölda á aðventu og ljúffeng leið til að læra meira um afbrigði sjaldgæfra og aldraðra viskíafbrigða.
Vinsamlega athugið: Örlitlar líkur eru á því að innihald jóladagatalsins geti hnikað örlítið frá uppgefnu innihaldi sem hér má lesa um – en áhyggjur eru þó með öllu óþarfar, þar sem hver og einn gluggi í jóladagatali ársins 2023 mun innihalda hágæða, sjaldgæft og aldrað viskí, sem fellur óaðfinnanlega að smekk jafnvel kröfuhörðustu viskíunnenda.
Hver og ein 30 ml bragðprufa (sýnishorn) sem jóladagatal ársins 2023 inniheldur, var handvalin af natni og alúð af sérfræðingum Drinks by the Dram’s – en auk þeirra sérvöldu, sjaldgæfu og öldruðu viskítegunda sem koma fram hér, eru önnur viskíafbrigði sem dagatalið kann að innihalda, í sama gæða- og verkflokki, enn ótalin og koma ljúflega á óvart!