9.800kr.
Þessi fallega jólagjafaaskja er tilvalin hvort sem aðventugjöf eða undir jólatréð og inniheldur Federico Paternina Resarva, rúbínrautt og meðalfyllt rauðvín, dökkar súkkulaðitrufflur frá Nicholas Vahé, hátíðarsmákökur með kókosflögum frá Mosfellsbakaríi og Meriaki ilmkerti með skandinavískum skógarilm.
Glæsileg hátíðaraskja sem inniheldur meðalfyllt og rúbínrautt spænskt vín, dökkar súkkulaðitrufflur frá Nicholas Vahe, kókossmákökur með hátíðarblæ frá Mosfellsbakarí og Meriaki soyja-ilmkerti með skandinavískum skógarilm. Dásamlegur jólapakki til að njóta í næði við ylríkt kertaljósið eða með ástvinum og í góðra vina hópi við kaffiborðið yfir hátíðir. Roðagyllta hátíðaraskjan innheldur:
Federico Paternina Resarva er meðalfyllt og rúbínrautt vín með kraftmiklu og fersku berjabragði; meðalsúrt og eikarþroskað. Ber, ávextir, krydd, létt tannín, eik, vanilla, tóbak. 100% Tempranillo vínþrúgur.
Uppruni: Rioja-hérað, Spánn
Styrkleiki: 13%
Magn: 750 ml
Lúxustrufflur gerðar úr fyrsta flokks dökku súkkulaði frá Nicolas Vahé, ómótstæðileg hátíðarfreisting með góðu rauðvíni.
Magn: 180 gr
Kókosbakaðar hátíðarsmákökur frá Hafliða Ragnarssyni bakarameistara. Fara vel í hátíðarskálinni með dökkum súkkulaðitrufflum frá Nicolas Vahé.
Hátíð ljóss og friðar verður enn fegurri þegar þú tendrar á þessu gullfallega ilmkerti frá Meraki, sem er framleitt úr sojabaunaolíu og hefur þar af leiðandi lengri endingartíma en venjuleg kerti. Ferskur ilmurinn færir þér skandinavískan skógarilm, en logatími er 35 klukkustundir. Falleg og stílhrein hönnun með góðum ilm sem lífgar upp á heimilið og glæðir jólaborðið hátíðarljóma.
ATH! Panta þarf gjafakassann með dags fyrirvara.