34.900kr.
Jóladagatal 2023 🎅🏼 Gin [White Christmas] Premium Aðventudagatal 2023 aðventudagatalið frá Drinks by the Dram´s er sannarlega frábær leið fyrir þá fullorðnu að telja niður daga til jóla! Aðventudagatalið inniheldur 24, fjölbreytilegar, 30 ml braðgprufur af hágæða gini, víðsvegar að úr heiminum fyrir hvern dag aðventu og allt fram til jóla!
Gin [White Christmas] Premium aðventudagatalið frá Drinks by the Dram´s er sannarlega frábær leið fyrir þá fullorðnu að telja niður daga til jóla! Aðventudagatalið inniheldur 24, fjölbreytilegar og hágæða 30 ml braðgprufur af hágæða gini víðsvegar að úr heiminum. Hver og ein 30 ml braðgprufa er handvalin af ginsérfræðingum Drinks by the Dram´s sem af kostgæfni og alúð, hafa raðað afar vönduðu og sérstæðu gini í hvern einasta glugga, einn fyrir hvern dag aðventu og allt fram til jóla! Sjálft dagatalið er úr pappír og er endurvinnanlegt, 30 ml flöskurnar eru úr gleri og eru endurvinnsluhæfar en lokið er vaxborið og þar ráða umhverfisverndarsjónarmið för.
Gin [White Christmas] Premium aðventudagatal ársins 2023, er frábær tækifærisgjöf fyrir gin-áhugafólk, ljúf leið til að njóta síðkvölda á aðventu og ljúffeng leið til að læra meira um afbrigði gintegunda. Hér að neðan má lesa og fræðast örlítið meira um hluta úrvals í Gin [White Christmas] Premium aðventudagatalinu, en listinn er þó ekki alveg tæmandi, enda væri ekkert varið í að fá að opna alla pakkana strax! – Hafið engar áhyggjur, muni úrvalið í aðventudagatalinu taka breytingum af hálfu framleiðanda, mun um sambærilegt innihald vera að ræða og talið er upp hér, í sama gæða- og verðflokki og listinn hér sýnir.