39.800kr.
Bourbon & American Whiskey Aðventudagatal 2023 🎅🏼 Þú finnur enga súkkulaðibita hér! Inni í hverjum og einum 24 glugga Bourbon & American Whiskey aðventudagatali 2023, er að finna eina 30 ml bragðprufu (sýnishorn) af hágæða Bourbon & American Whisky frá fremstu viskíframleiðendum heims, sem viskísérfræðingar Drinks By The Drams hafa valið af alúð og natni fyrir jólin í ár!
Available on backorder
Bourbon & American Whisky Aðventudagatal 2023 Þú finnur enga súkkulaðibita hér! Inni í hverjum og einum 24 glugga Bourbon & American Whisky aðventudagatali 2023, er að finna eina 30 ml bragðprufu (sýnishorn) af hágæða amerísku „bourbon“ og viskíi frá fremstu viskíframleiðendum víðsvegar um Bandaríkin, sem viskísérfræðingar Drinks By The Drams hafa valið af alúð og natni fyrir jólin í ár!
Bourbon & American Whisky / 44,5% Alc. / 720 ml / Aðventudagatal
Inni í hverjum og einum 24 glugga Bourbon & American Whisky aðventudagatali 2023, er að finna eina 30 ml bragðprufu (sýnishorn) af hágæða „bourbon“ og viskíi frá fremstu viskíframleiðendum víðsvegar um Bandaríkin, sem viskísérfræðingar Drinks By The Drams hafa valið af alúð og natni fyrir jólin í ár! Eftirfarandi upplýsingar um innihald, eru fengnar af vef Masters of Malt – smellið á tenglana til að fræðast um hverja og eina gerð af viskíi.
Bandarísk „bourbon“ og amerísk viskí hafa yfir sér sérstakan stíl og einstök bragðgæði, en Bourbon & American Whiskey viskíaðventudagatalið frá Drinks by the Dram er sannarlega forvitnilegt tækfæri til að kynnast 24 viskíafbrigðum frá sjálfri Ameríkuálfunni! Fagurlega skreytt aðventudagatal, sneisafullt af ljúfu gæðaviskíi, sem leiðir þig í gegnum aðventuna og alla leið inn í jólin; með ólíkum bragðeigindum og hvert með sinn sérstaka stíl.
Hver og ein 30 ml braðgprufa er handvalin af sérfræðingum Drinks by the Dram´s sem af kostgæfni og alúð, hafa raðað afar vönduðu og sérstæðu, japönsku viskíi í hvern einasta glugga! Sjálft dagatalið er úr pappír og er endurvinnanlegt, en 30 ml flöskurnar eru úr gleri og endurvinnsluhæfar en lokið er vaxborið innsigli sem hægt er að skola af fyrir endurvinnslu, og þar ráða umhverfisverndarsjónarmið för.
Bourbon & American Whisky – aðventudagatal ársins 2023, er frábær tækifærisgjöf fyrir viskí-áhugafólk, ljúf leið til að njóta síðkvölda á aðventu og ljúffeng leið til að læra meira um afbrigði japanskra viskíafbrigða. Hér má lesa og fræðast örlítið meira um hluta úrvals í Bourbon & American Whisky aðventudagatalinu, en listinn er þó ekki alveg tæmandi, enda væri ekkert varið í að fá að opna alla pakkana strax!
Vinsamlega athugið: Örlitlar líkur eru á því að innihald jóladagatalsins geti hnikað örlítið frá uppgefnu innihaldi sem hér má lesa um – en áhyggjur eru þó með öllu óþarfar, þar sem hver og einn gluggi í jóladagatali ársins 2023 mun innihalda hágæða „bourbon“ og amerískt viskí, sem fellur óaðfinnanlega að smekk jafnvel kröfuhörðustu viskíunnenda.
Hver og ein 30 ml bragðprufa (sýnishorn) sem jóladagatal ársins 2023 inniheldur, var handvalin af natni og alúð af sérfræðingum Drinks by the Dram’s – en auk þeirra sérvöldu, amerísku viskítegunda sem koma fram hér, eru önnur viskíafbrigði sem dagatalið kann að innihalda, í sama gæða- og verkflokki, enn ótalin og koma ljúflega á óvart!
Weight | 1 kg |
---|