BRAGÐLÝSING. Þetta vín er kirsuberjarautt á lit, unglegt með ágæta dýpt og fallega tauma. Í nefinu finnur maður plómur, sólber, lakkrís, ameríska eik og krydd. Í munni eru sæmileg tannín, ágæt sýra, góð fylling og vínið er í ágætu jafnvægi. Í eftirbragðinu finnur maður vott af kakó, ristuðum möndlum og smá myntu. Hentar vel með steikum, grilluðu kjöti, hráskinku og tapas BRAGÐFLOKKUR – SMÁ SÆTA Rósavín eru mjög fjölbreytt, en flest í ósætari kantinum með ríkan keim af ávöxtum. Í þessum flokki eru líka blush-vín sem eru oftast millisæt, ávaxtarík og létt í alkóhóli. Litur rósavíns er misdökkur og ræðst hann af því hversu lengi vínið var með hýðinu og er styrkleikinn þá allt frá ljósum og yfir í dökkrauðan blæ.
Þyngd | 1.3 kg |
---|---|
Upprunaland | Spánn |
Magn | 750ml |
Styrkleiki | 13% |
BRAND NAME | |
---|---|
GROUP | |
GROUP DESCRIPTIONS |