Persónuverndarstefna
NýjaVínbúðin.is er ábyrgðaraðili að vinnslu persónuupplýsinga sem fram fer af hálfu
stofnunarinnar.
NýjaVínbúðin.is hefur það leiðarljós að framfylgja stefnu stjórnvalda um bætta lýðheilsu og
samfélagslega ábyrgð í áfengismálum í sátt við samfélagið. NýjaVínbúðin.is starfar samkvæmt
lögum og reglum sem finna má á heimasíðunni.
NýjaVínbúðin.is leggur áherslu á að tryggja að öll meðferð persónuupplýsinga sé í samræmi við
ákvæði laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Markmið
persónuverndarstefnunnar er að auðvelda einstaklingum að átta sig á hvaða upplýsingum
NýjaVínbúðin.is safnar, hvers vegna og hvað er gert við þær.
Persónuverndarstefnan nær til persónuupplýsinga sem NýjaVínbúðin.is er ábyrgðaraðili fyrir
vinnslu á, einkum þær er varða viðskiptavini og starfsfólk NýjaVínbúðin.is.
Stefnan er byggð á lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
Lýsing
Persónuupplýsingar í skilningi stefnunnar eru hvers kyns upplýsingar sem hægt er að rekja beint
eða óbeint til ákveðins einstaklings. Gögn sem eru ópersónugreinanleg teljast ekki
persónuupplýsingar.
Persónuverndarfulltrúi
NýjaVínbúðin.is hefur tilnefnt persónuverndarfulltrúa. Helstu hlutverk hans eru eftirfarandi:
● Veita ráðgjöf um öll mál sem tengjast vernd persónuupplýsinga
● Upplýsa starfsfólk um skyldur sínar skv. lögunum
● Fylgjast með að farið sé að lögum um persónuvernd
● Vera tengiliður við Persónuvernd
Fyrirspurnum, athugasemdum og ábendingum sem varða persónuupplýsingar og persónuvernd er
unnt að beina á netfangið info@nyjavinbudin.is
Hvenær og hvernig vinnur NýjaVínbúðin.is með persónuupplýsingar?
NýjaVínbúðin.is skráir og varðveitir upplýsingar sem eru nauðsynlegar hverju sinni og fer það
eftir málum og verkefnum sem unnið er með. Í flestum tilfellum fær NýjaVínbúðin.is
persónuupplýsingar beint frá hinum skráða, s.s. nafn, heimilisfang, kennitölu, símanúmer,
netfang og fleira.
Umfangsmeiri upplýsingum er safnað saman um starfsfólk en aðra. Upplýsingarnar geta bæði
verið á pappír eða rafrænar. Sérstök aðgát er höfð við söfnun og meðferð viðkvæmra
persónuupplýsinga s.s. upplýsinga um heilsufar eða samskipti.
Lögð er rík áhersla á að öll vinnsla persónuupplýsinga sé í samræmi við meginreglur um vinnslu
persónuupplýsinga.
Hjá NýjaVínbúðin.is verða til persónuupplýsingar
● Ef send er fyrirspurn, ábending eða kvörtun, vegna starfseminnar, sem innihalda
persónuupplýsingar
● Þegar viðskiptavinur pantar vöru
● Vegna umsóknar um starf
● Umsækjandi um starf vísar á viðkomandi sem meðmælanda
● Þegar átt er í samskiptum við fyrirtæki eða stofnun sem viðkomandi starfar fyrir, þar sem
persónuupplýsingar hafa verið gefnar upp
● Ef fengnar eru nauðsynlegar persónuupplýsingar frá öðrum stofnunum eða fyrirtækjum
Upplýsingar um starfsmenn og umsækjendur um störf
NýjaVínbúðin.is vinnur með persónuupplýsingar um starfsfólk sitt til að geta greitt því laun fyrir
störf sín. Tilteknar upplýsingar eru nauðsynlegar til að geta greitt laun s.s. tengiliðaupplýsingar,
launaflokkur, tímaskráningar, stéttarfélagsaðild, bankaupplýsingar, lífeyrissjóðsupplýsingar.
Þegar sótt er um starf er nauðsynlegt að vinna með persónuupplýsingar við mat umsókna, s.s.
tengiliðaupplýsingar, ferilskrá, upplýsingar um menntun, sakavottorð, niðurstöður úr
ráðningarviðtölum, umsagnir þriðja aðila og önnur samskipti við umsækjendur.
Hvernig eru persónuupplýsingar notaðar?
Persónuupplýsingar eru aðeins notaðar í þeim tilgangi sem þeirra var aflað í.
Almennt vinnur starfsfólk NýjaVínbúðin.is ekki með persónuupplýsingar, einungis þegar
nauðsyn krefur vegna þeirra verkefna sem það hefur umboð til að sinna. Þess er gætt að vinnsla
persónuupplýsinga sé ávallt í samræmi við ákvæði laga og reglugerða um persónuvernd.
Hversu lengi varðveitir NýjaVínbúðin.is persónuupplýsingar?
NýjaVínbúðin.is er skilaskyldur aðili samkvæmt lögum nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn og er
þar af leiðandi óheimilt að eyða skjölum og gögnum sem stofnuninni berast eða verða til hjá
henni, nema að fengnu leyfi Þjóðskjalasafns Íslands. Í skilaskyldu felst jafnframt að öllum
skjölum og gögnum sem berast NýjaVínbúðin.is eða verða til hjá stofnuninni, skal skilað til
Þjóðskjalasafns þar sem þau eru geymd til framtíðar.
Nánari upplýsingar um Þjóðskjalasafn Íslands má finna á vef safnsins.
Hvernig er öryggi persónuupplýsinga tryggt?
Ríkar kröfur um öryggi persónuupplýsinga eru gerðar hjá NýjaVínbúðin.is og aðgangur að þeim
takmarkaður og aðgangsstýrður. Þannig eru sérstaklega ríkar kröfur gerðar um öryggi húsnæðis
og tölvukerfa stofnunarinnar hvað þetta varðar. Sömu kröfur eru gerðar til þeirra þjónustuaðila
sem starfa fyrir NýjaVínbúðin.is og eru gerðir vinnslusamningar við viðkomandi aðila.
Öllu starfsfólki NýjaVínbúðin.is er skylt að gæta þagmælsku um atriði sem þeir fá vitneskju um í
starfi sínu og leynt skulu fara samkvæmt lögum, fyrirmælum yfirmanna eða eðli málsins. Sú
þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi. Ákvæði þess efnis er í ráðningarsamningum og vísað þar
í lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Þín réttindi samkvæmt persónuverndarlöggjöfinni
Samkvæmt persónuverndarlöggjöfinni hafa hinir skráðu ákveðin réttindi sem tiltekin eru hér að
neðan. Þeir geta haft samband með því að senda tölvubréf á netfangið info@nyjavinbudin.is og
fengið sent eyðublað til að fylla út og óska þannig eftir upplýsingum. NýjaVínbúðin.is verður
almennt við beiðnum um upplýsingar að kostnaðarlausu ef einungis er farið fram á eitt afrit, að
öðrum kosti gæti verið tekið gjald fyrir kostnaði.
Beiðnum um aðgang að upplýsingum er svarað innan mánaðar frá því að beiðnin barst en hægt
er að framlengja frestinn um tvo mánuði sé beiðnin sérstaklega umfangsmikil. Í þeim tilfellum er
viðkomandi upplýstur um ástæður tafarinnar.
Nauðsynlegt er að framvísa lögmætum skilríkjum þegar óskað eftir upplýsingum.
● Aðgangsréttur
Einstaklingur á rétt á að vita hvort unnið sé með persónuupplýsingar um sig og fá aðgang að
þeim ef svo er. Réttindi geta þó verið háð takmörkunum sem leiða m.a. af lögum og/eða
hagsmunum annarra einstaklinga sem upplýsingarnar varða.
Ítarlegri upplýsingar um aðgangsrétt má nálgast á vefsíðu Persónuverndar.
Einstaklingur getur einnig átt rétt á aðgangi að gögnum um sig sjálfan samkvæmt 15. gr.
stjórnsýslulaga nr. 37/1993, þar sem fjallað er um rétt aðila máls til aðgangs að málsgögnum, og
samkvæmt 14. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Hér getur verið skörun á milli lagabálka sem
meta þarf hverju sinni.
● Réttur til leiðréttingar
Einstaklingur á rétt á því að fá leiðréttar persónuupplýsingar um sig, sem hann telur rangar. Þó
skal tekið fram að með hliðsjón af ákvæðum laga nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn, er oft
óheimilt að breyta gögnum sem stofnunin býr yfir. Þá kann að vera mögulegt að koma
leiðréttingu á framfæri með athugasemd, sem látin er fylgja gögnunum, þegar við á. Einnig er
hægt að óska eftir að bæta upplýsingum við þær persónuupplýsingar sem NýjaVínbúðin.is hefur,
ef skráður aðili telur þær ófullnægjandi.
Ítarlegri upplýsingar um réttinn til leiðréttingar má nálgast á vefsíðu Persónuverndar.
● Réttur til eyðingar / rétturinn til að gleymast
Rétturinn til eyðingar eða rétturinn til að gleymast á ekki við um vinnslu persónuupplýsinga hjá
NýjaVínbúðin.is, þar sem NýjaVínbúðin.is er bundin að lögum um opinber skjalasöfn til að
varðveita allar upplýsingar sem henni berast. Í persónuverndarlögum er sérstaklega tekið fram að
réttur til eyðingar persónuupplýsinga og til að gleymast, eigi ekki við þegar lög mæla fyrir um að
upplýsingarnar skuli varðveittar. Þannig gildir rétturinn til eyðingar / rétturinn til að gleymast
ekki um persónuupplýsingar sem NýjaVínbúðin.is vinnur með.
Ítarlegri upplýsingar um réttinn til eyðingar persónuupplýsinga og réttinn til að gleymast má
nálgast á vefsíðu Persónuverndar.
● Réttur til takmörkunar á vinnslu
Einstaklingur á rétt á að biðja um að vinnsla sé takmörkuð í ákveðnum aðstæðum.
● Réttur til að andmæla vinnslu
Einstaklingur á rétt á að andmæla vinnslu persónuupplýsinga um sig þegar NýjaVínbúðin.is
vinnur persónuupplýsingar um hann á grundvelli almannahagsmuna eða við beitingu opinbers
valds.
Nálgast má ítarlegri upplýsingar um andmælarétt á vefsíðu Persónuverndar
● Réttur til að flytja eigin gögn
Rétturinn til að flytja eigin gögn á eingöngu við þegar upplýsingar eru unnar á grundvelli
samþykkis eða við gerð samnings. NýjaVínbúðin.is starfar á grundvelli laga og byggir því mjög
lítinn hluta sinnar vinnslu á persónuupplýsingum eða samþykki eða samningi. Þar af leiðandi er
ólíklegt að þessi réttur eigi við um þá vinnslu sem NýjaVínbúðin.is framkvæmir, þar sem hún fer
nánast eingöngu fram á grundvelli lagaskyldu eða almannahagsmuna.
Nálgast má ítarlegri upplýsingar um réttinn til flutnings eigin gagna á vefsíðu Persónuverndar.
● Kvartanir vegna vinnslu persónuupplýsinga.
Teljir þú að meðferð NýjaVínbúðin.is á persónuupplýsingum þínum sé ekki í samræmi við
gildandi lög og reglur um persónuvernd getur þú sent Persónuvernd kvörtun. Persónuvernd hefur
það hlutverk að gæta hagsmuna almennings þannig að mannréttindi séu ekki brotin við meðferð
upplýsinga. Stofnunin hefur eftirlit með lögum og reglum um vinnslu persónuupplýsinga.
Einnig er hægt að beina málum sem varða persónuupplýsingar og persónuvernd á netfangið
atvr(hjá)atvr.is
Notkun á vafrakökum og stoðþjónustu frá greiningaraðilum á vefsíðu NýjaVínbúðin.is
Endurskoðun
NýjaVínbúðin.is uppfærir persónuverndarstefnu sína eftir því sem tilefni gefst til, svo sem í
samræmi við laga- eða reglugerðarbreytingar eða vegna breytinga á því hvernig unnið er með
persónuupplýsingar.
Allar breytingar sem kunna að verða gerðar á stefnunni taka gildi eftir að uppfærð útgáfa hefur
verið birt á vefsíðu NýjaVínbúðin.is, https://nyjavinbudin.is/
Persónuverndarstefna þessi var yfirfarin og samþykkt af framkvæmdaráði 1. Júlí 2021