Kaupskilmálar

1. Almenn ákvæði

Skilmálar þessir gilda um kaup á vöru eða þjónustu á vefsvæðinu www.NýjaVínbúðin.is. Vörur í vefversluninni eru seldar af Lonrek Ltd, fyrirtækjanúmer 16967389, 20 Wenlock Road, London, England, N1 7GU (hér eftir „seljandi“). Nýja Búðin ehf., kt. 690925-0600, Hamraborg 14a, 200 Kópavogi, er þjónustuaðili seljanda á Íslandi og annast rekstur vefþjónustu, þjónustu við viðskiptavini, lagerafgreiðslu og afhendingu. NýjaVínbúðin.is er vörumerki vefverslunarinnar. Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur seljanda annars vegar og kaupanda hins vegar og teljast samþykktir við kaup.

„Kaupandi“ er einstaklingur sem kaupir vöru til einkanota í skilningi laga um neytendakaup nr. 48/2003. Kaupandi áfengis verður að vera að minnsta kosti 20 ára og getur þurft að staðfesta aldur við skráningu, kaup eða afhendingu. Fyrirtæki geta einnig átt viðskipti við seljanda eftir því sem við á. Kaupandi sækir greidda pöntun í Hamraborg 14a, 200 Kópavogi. Afhending á staðnum er án aukagjalds.

2. Upplýsingar og verð

Verð á vefsvæði NýjaVínbúðin.is og í útsendum póstum eru með virðisaukaskatti og birt með fyrirvara um innsláttarvillur, prentvillur og myndvillur. NýjaVínbúðin.is áskilur sér rétt til að afturkalla pantanir í heild eða að hluta ef viðkomandi vara er uppseld, skemmd eða gölluð. NýjaVínbúðin mun upplýsa kaupanda um slíkt eins fljótt og kostur er og hugsanlega koma með tillögu að annarri vöru sem kaupandi getur samþykkt eða hafnað.

3. Persónuupplýsingar

Á NýjaVínbúðin.is er aðgengileg persónuverndarstefna þar sem kemur fram hvernig Lonrek Ltd og Nýja Búðin ehf. vinna með persónuupplýsingar í tengslum við kaup, þjónustu og afhendingu og hvaða réttindi viðskiptavinir eiga.

4. Aðgangur

Kaupandi hefur leyfi til að nota NýjaVínbúðin.is og þá þjónustu sem þar er boðið upp á í samræmi við skilmála þessa og þær aðgangstakmarkanir sem NýjaVínbúðin.is setur. Stranglega er bannað að falsa nafn og persónuupplýsingar við skráningu inn á NýjaVínbúðin.is. NýjaVínbúðin.is áskilur sér rétt til að vinna náið með lögreglu við úrlausn slíkra mála, þ.m.t. að veita henni þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru. Verði kaupandi uppvís að sviksamlegu athæfi við kaup á NýjaVínbúðin.is verður það tilkynnt til lögreglu. NýjaVínbúðin.is áskilur sér rétt til að takmarka eða loka fyrir aðgang að NýjaVínbúðin.is ef grunur leikur á að kaupandi hafi orðið uppvís að falsa nafn og persónuupplýsingar við skráningu.

5. Innskráning, pöntun og afhending

Við fyrstu innskráningu á NýjaVínbúðin.is skráir kaupandi fullt nafn, kennitölu, heimilisfang og tölvupóstfang sitt og samþykkir að hann hafi lesið persónuverndarstefnu félagsins. Einnig getur kaupandi samþykkt að vera á póstlista og SMS lista NýjaVínbúðin.is. Pöntun kaupanda á NýjaVínbúðin.is er bindandi þegar hann hefur staðfest pöntun sína í kaupferlinu. NýjaVínbúðin.is er skuldbundið að afgreiða pöntun kaupanda (nema í tilvikum sem nefnd eru í 2. grein) og sendir kaupanda pöntunarstaðfestingu í tölvupósti. Jafnframt sendir NýjaVínbúðin.is kaupanda afrit af reikningi ef greiðsla berst frá kaupanda. Kaupandi er hvattur til að yfirfara pöntunarstaðfestingu þegar hún berst. Kaupandi bíður eftir sérstakri staðfestingu um að pöntunin sé tilbúin áður en hann kemur í Hamraborg 14a. Við afhendingu áfengis þarf kaupandi að vera orðinn 20 ára og geta sýnt gild skilríki.

6. Yfirferð á vöru

Eftir að kaupandi hefur móttekið pöntunina þarf hann að kanna hvort hún sé í samræmi við pöntunarstaðfestingu og reikning. Ef kaupandi telur að varan sé ekki í samræmi við vörulýsingu þarf hann að senda tilkynningu þess efnis með tölvupósti eða hafa samband við þjónustuver NýjaVínbúðinnar. NýjaVínbúðin áskilur sér rétt til að sannreyna slíkar staðhæfingar innan 7 daga.

7. Samningurinn

Með greiðslu staðfestir kaupandi að hann þekki gildandi skilmála NýjaVínbúðin.is. Skilmálarnir eru aðgengilegir á vefsvæði NýjaVínbúðin.is. Hver kaup eru bindandi fyrir kaupanda samkvæmt skilmálum og skilyrðum NýjaVínbúðin.is.

8. Greiðsla

  • Kredit- eða debetkort: Greiðsla fer fram í gegnum örugga greiðslugátt þegar kaupandi staðfestir upplýsingar.
  • Millifærsla: Ef millifærsla er í boði skal greiða á þann reikning sem kemur fram í kaupferli eða á reikningi og setja pöntunarnúmer í tilvísun. Ef greiðsla berst ekki innan tveggja daga getur pöntunin fallið niður.

9. Skilaréttur

NýjaVínbúðin.is skuldbindur sig til að afhenda kaupanda vöru eða þjónustu í samræmi við skilmála þessa og gildandi rétt. Kaupandi getur ekki skilað vöru nema hún sé í óopnuðum umbúðum. Ef til endurgreiðslu kemur innan 14 daga frá kaupum endurgreiðir NýjaVínbúðin.is kaupanda á sama hátt og hann greiddi – með bakfærslu, innlögn eða inneign hjá NýjaVínbúðin.is.

10. Galli

Ef vara er gölluð er NýjaVínbúðin.is skylt að bjóða kaupanda nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Tilkynna þarf galla innan tveggja mánaða frá því að kaupandi varð hans var. NýjaVínbúðin áskilur sér rétt til að sannreyna galla innan 7 daga.

11. Ábyrgð

Ábyrgð NýjaVínbúðin.is hefur ekki í för með sér takmörkun á rétti samkvæmt lögum um neytendakaup nr. 48/2003. Ef sala er til fyrirtækis gildir eins árs ábyrgð samkvæmt lögum nr. 50/2000.

12. Eignarréttur

Seldar vörur eru eign seljanda, Lonrek Ltd, þar til kaupverð hefur verið greitt að fullu.

13. Annað

NýjaVínbúðin.is áskilur sér rétt til að breyta ákvæðum skilmálanna. Birting nýrra skilmála á vefsíðu telst fullnægjandi tilkynning.

14. Ágreiningur

Um viðskiptin gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur má bera hann undir Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa eða fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur samkvæmt lögum nr. 91/1991.

15. Gildistími

Afhendingarákvæði þessarar útgáfu gilda frá 21. nóvember 2026. Önnur ákvæði gilda frá 15. ágúst 2026.

Lonrek Ltd · Seljandi | Nýja Búðin ehf. · Þjónustuaðili á Íslandi