Tia Maria Dark Liqueur (700 ml)
5.939kr.
Tia Maria er arómatískur og margslunginn, kaldbruggaður kaffilíkjör. Allt frá árdögum Tia Maria á markaði hefur líkjörinn notið mikilla vinsælda hjá unnendum kaffilíkjöra um allan heim en Tia Maria var notað í alfyrstu Espresso Martini uppskriftina sem kom á markað fyrir ríflega fjörtíu árum síðan.
20% alc / 700 ml / Glerflaska / Skrúftappi
Out of stock
Fá tilkynningu
Tia Maria Dark Liqueur
Tia Maria er arómatískur og margslunginn, kaldbruggaður kaffilíkjör. Sjálf sagan af uppruna Tia Maria er heillandi og nær aftur til miðbiks sautjándu aldar, þegar glæst og enn ung, spænsk aðalsmeyja og aristókrati að nafni Mafe, flúði það umrót sem nýlendustríðið hafði á lífsskilyrði eyjarskeggja á Jamaika. Einkaþjón Mate tókst, við flóttann mikla, að bjarga fjölskyldugersemi, sem einmitt var uppskrift að dulúðugum líkjör og hafði verið í eigu fjölskyldunnar í nokkrar kynslóðir, en uppskriftin sjálf var síðar nefnd í höfuð ungu og hugrökku aðalsmeyjunni. Tia Maria var fædd. Uppskriftin lá svo í dvala, ef svo má að orði komast, um árabil eða allt þar til á fjórða áratug síðustu aldar, þegar Dr. Kenneth Leigh Evans nokkur, kom höndum yfir hlutföllin og uppskriftina, sem hann hóf að framleiða og markaðssetja. Allt frá árdögum Tia Maria á markaði hefur líkjörinn notið mikilla vinsælda hjá unnendum kaffilíkjöra um allan heim en Tia Maria var notað í alfyrstu Espresso Martini uppskriftina sem kom á markað fyrir ríflega fjörtíu árum síðan.
20% Alc / 700 ml / Glerflaska / Skrúftappi
Weight | 1,28 kg |
---|---|
Upprunaland | Ítalía |
Framleiðandi | Illva Saronno |
Stíll | Kaffilíkjör |
Litur | Dökkbrúnn |
Styrkleiki | 20% |
Magn | 700ml |
Umbúðir | Glerflaska, skrúftappi |