Ábyrgðaraðili og þjónustuaðili
Vefverslunin Nýja Vínbúðin er rekin af Lonrek Ltd, fyrirtækjanúmer 16967389, 20 Wenlock Road, London, England, N1 7GU. Lonrek Ltd er seljandi vara í vefversluninni og ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við viðskipti á nyjavinbudin.is.
Nýja Búðin ehf., kt. 690925-0600, Hamraborg 14a, 200 Kópavogi, er þjónustuaðili Lonrek Ltd á Íslandi og annast þjónustu við viðskiptavini, lagerafgreiðslu og afhendingu.
Hvaða upplýsingar eru unnar?
Við vinnum aðeins þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að starfrækja vefverslunina og afgreiða pantanir. Það getur meðal annars verið nafn, kennitala eða upplýsingar vegna aldursstaðfestingar, símanúmer, netfang, heimilisfang, pöntunar- og afhendingarupplýsingar, greiðslustaðfestingar og samskipti við þjónustuver.
Tilgangur vinnslunnar
Upplýsingarnar eru notaðar til að stofna og reka aðgang, taka við greiðslu, afgreiða og afhenda pantanir, staðfesta aldur, veita þjónustu, uppfylla bókhalds- og lagaskyldur og koma í veg fyrir misnotkun eða svik.
Greiðslur og miðlun upplýsinga
Greiðslukortaupplýsingar eru meðhöndlaðar af greiðsluþjónustuaðila og eru hvorki geymdar hjá Lonrek Ltd né Nýju Búðinni ehf. Nauðsynlegum upplýsingum kann að vera miðlað til greiðsluþjónustuaðila, afhendingaraðila, hýsingar- og kerfisþjónustuaðila og stjórnvalda þegar lög krefjast þess.
Varðveisla og réttindi
Persónuupplýsingar eru ekki varðveittar lengur en nauðsynlegt er vegna viðskiptanna eða lagaskyldna. Þú getur óskað eftir aðgangi að upplýsingum, leiðréttingu, eyðingu eða takmörkun vinnslu eftir því sem við á.
Fyrirspurnir um persónuvernd má senda á info@nyjavinbudin.is.
Síðast uppfært 15. ágúst 2026.